Varahlutaþjónusta

Varahluta þjónusta RÖTT – Fantic á Íslandi

Varahluta þjónusta er okkur mjög mikilvæg og leggjum við því mikið uppúr því að eiga góðan lager af varahlutum fyrir Fantic tækin ykkar. Fantic leggur gríðarlega áherslu á að Fantic eigendur eigi að fá hraða og góða þjónustu.
Ef varahlutir eru ekki til á lager er biðtími 3-5 virkir dagar í sendingu.
Inná vefverslun okkar má finna ýmsa aukahluti fyrir rafhjólið þitt og mótorhjólið og brot af varahlutum okkar.
Mikil vinna er að setja upp alla orginal varahluti Fantic á vefverslun, það mun koma en á meðan biðjum við ykkur um að hringja í varahlutaþjónustu okkar í síma 537-1333 eða email info@rott.is
Einnig er hægt að senda inn fyrirspurn hérna fyrir neðan og við svörum samdægurs.
Heimsendingar þjónusta á varahlutum.
Við sendum varahluti hvert á land sem er og bjóðum góð verð í heimsendingu. Ef verslað er fyrir meira en 20.000kr sendum við varahlutinn frítt heim.

Varahlutir mótorhjól.

Varahlutalager okkar samanstendur af vottuðum orginal Fantic varahlutum. Fantic varahlutir ganga líka í flestar gerðir Yamaha torfæruhjóla. Ef þú átt Yamaha tæki ekki hika við að hafa samband og sjá hvort við eigum ekki hlutinn í hjólið þitt.

Varahlutir rafhjól

Varahlutalager Fantic rafhjóla hjá okkur samanstendur af vottuðum sérhlutum og varahlutum frá Fantic og varahlutum á þeim íhlutum sem notaðir eru í hjólin frá vörumerkjunum: Rockshox, Sram, Mavic, FSA, Brose Mótorar og tengi(Alltaf til á lager), Yamaha mótorar og tengi(Alltaf til á lager), Fantic batterý 630wh og 720wh, Magura bremsur og fleira.
Við erum einnig vottað Brose þjónustuverkstæði og getum því útvegað Brose viðgerðarsett í Brose mótora. Á verkstæðinu okkar getum við tekið að okkur Allar gerðir Brose mótora í viðgerðir.
Til að athuga með varahlut er hægt að heyra í okkur í síma 537-1333 eða info@rott.is á meðan varahlutir eru ekki komnir í vefverslun okkar. Ath. Fyrir Fantic rafhjól er gott að senda serial númer hjóls með.

Hafa Samband

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Quisque eu posuere purus. Aliquam sit amet condimentum neque, quis accumsan dui. Duis dapibus.

Scroll to Top

Tilbúin(n) í næsta ævintýri? 🏔️

Við hjá RÖTT lifum fyrir drullu og hraða. Skráðu þig á listann fyrir sérstök boð á viðburði, nýjustu vörurnar frá okkar helstu merkjum og sértilboð sem fara aldrei á samfélagsmiðla.

0