Skilmálar
ÞJÓNUSTUSKILMÁLAR
Rött ehf er umboðsaðili Fantic á Íslandi og verslun sem selur hágæða hlífðarfatnað fyrir mótorhjól og reiðhjól, aukahluti og varahluti.
Rött ehf, kt. 420513-1940, Skemmuvegur 32 (bleikgata), 200 Kópavogur. VSK nr.113764. Netfang: info@rott.is og sími 537 1333.
Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikningi. Kaupandi verður að vera orðinn fjárráða til þess að eiga viðskipti í netverslun, www.rott.is
PANTANIR
VERÐ
Verð er alltaf staðgreiðsluverð með 24% virðisaukaskatti. Rött áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara. Öll verð eru í íslenskum krónum og eru birt með fyrirvara um prentvillur og myndarugl. Rött áskilur sér rétt til að hætta við viðskiptin hafi rangt verð eða röng mynd fylgt vörunni á vefsíðunni.
SKILAREGLUR VEFVERSLUN
Skilmálar þessir gilda um vörukaup í vefverslun okkar.
Frí heimsending er á pöntunum yfir 15.000kr. Ef vörukaup eru undir 15.000kr reiknast sendingarkostnaður samkvæmt verðskrá dropp.
- Hefðbundinn afgreiðslutími pantanna eru 1-3 virkir dagar frá því að pöntun er gerð.
- Einnig er hægt að velja að sækja vörur í verslun og afhendast þær vörur á afgreiðslutíma verslunar Rött. Viðskiptavinir fá þá senda staðfestingu í tölvupósti þegar varan er tilbúin til afhendingar.
- Pantanir eru sendar með Dropp og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar. Rött ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.
- Skilaréttur er 14 dagar frá afhendingu. Vörur þurfa að vera í sínu upprunalega ástandi og kvittun þarf að fylgja. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur nema um ranga eða gallaða vöru sé að ræða.
SKILAREGLUR VERSLUN
- Vöru sem skilað er endurgreiðist með inneignarnótu eða á reikning/kort viðkomandi.
- Sérpöntuðum vörum er ekki hægt að skila.
- Vöru er einungis hægt að skila eða Skipta gegn framvísun kassakvittunar eða að vara sé merkt með skilamiða Rött.
- Vörum sem skilað er þurfa að vera í góðu ástandi; upprunalegum umbúðum, með upprunalegum merkingum og ónotuð.
- Vörum sem keyptar eru á útsölu er ekki hægt að skila en leyfilegt að skipta í aðra vöru innan útsölunnar.
TRÚNAÐUR
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin.
Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
LÖG OG VARNARÞING
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Governing Law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.
GREIÐSLUMÁTI
Hægt er að greiða með kreditkorti, símgreiðslu eða millifærslu:
- Kreditkort– Hægt er að greiða vöruna í vefversluninni með kreditkorti í gegnum örugga greiðslugátt salt pay.
- Millifærsla– Pöntun er samþykkt þegar millifærsla er staðfest. Pöntun telst ógild berist greiðsla ekki innan 24 klst.