1
5.950 kr.

Crussis e-Full 10.12-PRO AVINOX M2S REM(800 Wh) – 2027 árgerð

Crussis e-Full AX CARB 10.12-PRO REM-M2S er eitt fremsta flaggskipið í 2027 línunni. Hér er sameinaður léttur koltrefjarammi (carbon), fjarlægjanleg 800 Wh rafhlaða, hið gríðarlega öfluga Avinox M2S drifkerfi og búnaður í hæsta gæðaflokki. Hjólið er sérstaklega hannað fyrir hjólara sem leita að lágri þyngd, hárri nákvæmni og fullkomnu öryggi á hraðvirkum slóðum og í krefjandi enduro-landslagi.

Helstu eiginleikar í hnotskurn

  • Drægni: Allt að 157 km

  • Rafhlaða: Avinox 800 Wh (Fjarlægjanleg, hraðhleðsla með 12A hleðslutæki)

  • Mótor: Avinox M2S 2026 (130 Nm / allt að 150 Nm í Boost, 1500W hámarksafl)

  • Gírar: 1 x 12 (SRAM GX Eagle AXS T-Type – Þráðlaus skipting)

  • Dempun: FOX Float 36 Factory Grip X2 (160 mm) / FOX Float X

  • Tækni: Avinox DP100 2″ OLED snertiskjár með tveimur þráðlausum stýritökkum

Koltrefjarammi í sérflokki

Hjólið skartar léttum og gríðarlega sterkum koltrefjaramma (Carbon) sem gefur því hámarks stífni og tæknilega yfirburði í óbyggðum. Hönnunin tryggir lágan þungamiðju, frábæra stýringu og þá þægilegu praktík að geta tekið rafhlöðuna úr til hleðslu eða geymslu.

⚡ FORSALA HAFIN – CRUSSIS AVINOX 2027

Tryggðu þér eitt af eftirsóttustu rafmagnsreiðhjólum ársins!

Vegna mikillar eftirspurnar og takmarkaðs upplags bjóðum við upp á forpantanir á CRUSSIS 2027 árgerðinni. Hjólin afhendast í nokkrum sendingar tímabilum frá lokum árs 2026 og fram á mitt ár 2027. 1)Afhending byrjun Nóv-Lok des 2026 2)afhending byrjun febrúar-lok mars 2027 3)afhending byrjun apríl-Lok apríl 2027 4)afhending byrjun Maí-Júní 2027.

Ath takmarkað magn af týpum er í hverju sendingartímabili svo það borgar sig að hafa hraðar hendur til að tryggja sér rétta gerð og stærð á þeim tíma sem maður vill fá afhent.

📩 Hvernig forpantar þú?

Til að kanna stöðu á lager, afhendingartíma ákveðins hjóls og tryggja þér hjól í þinni stærð er einfaldast að hafa samband við okkur:

  • 📧 Senda póst: Skrifaðu okkur á info@rott.is (Með gerð hjóls og stærð)

  • 📞 Hringja í okkur: Hafðu samband í síma 537-1333

Öllum fyrirspurnum er svarað innan klukkustundar á opnunartíma verslunar (virka daga kl. 09:00–17:00).

🤝 Pöntunarferli og verðstefna

  • Okkar verðstefna: Við hjá Rött leggjum áherslu á að bjóða CRUSSIS á sanngjörnu og lágu raunverulegu verði allan ársins hring. Með því tryggjum við öllum viðskiptavinum okkar bestu mögulegu kjörin – hvort sem er við forpöntun eða kaup í verslun.

  • Greiðsla: Þegar laust eintak hefur verið staðfest í réttri stærð og sendingu, er pöntunin virkjuð með 20% staðfestingargjaldi. Eftirstöðvar eru síðan greiddar við afhendingu hjólsins.

📋 Skilmálar forpantana

  • Staðfestingargjald: Staðfestingargjaldið (20%) er óafturkræf greiðsla sem staðfestir og tryggir forpöntun á viðkomandi hjóli.

  • Verðfyrirvari: Öll verð eru birt með fyrirvara um innsláttar- og prentvillur. Verð geta breyst án fyrirvara vegna verulegra breytinga á gengi gjaldmiðla, VSK-breytinga, Verðbreytingum framleiðanda eða ófyrirséðra hækkana á flutningskostnaði.

  • Afhendingartími: Áætlaðir afhendingarmánuðir miðast við framleiðsluáætlun CRUSSIS og flutningsaðila. Seinkanir í framleiðslu eða flutningum sem eru óviðráðanlegar af okkar hálfu geta hliðrað afhendingartíma.

Viltu skoða aðrar útfærslur? Þú getur flett á milli gerða hér á vörusíðunni eða heyrt í sölumönnum okkar fyrir nánari ráðgjöf.

Fyrir ítarlegar tækni upplýsingar og til að skoða stærðartöflu farið neðar í síðuna og ýtið á „LÝSING“

1.090.000 kr.

- +

Öruggar greiðsluleiðir

Lýsing

Ótrúlegur kraftur: Avinox M2S drifkerfið

Mótorinn vegur aðeins 2,6 kg en skilar allt að 1500 W hámarksafli og 130 Nm togi, sem fer upp í heil 150 Nm í Boost mode. Snjallir skynjarar mótorsins aðlaga aðstoðina sjálfkrafa að þínum hjólastíl og landslagi.

Avinox DP100 snertiskjár og 12A hraðhleðsla

Stjórnstöð hjólsins er samþættur 2″ OLED snertiskjár í rammann með hárri birtu (800 nits) og innbyggðu GPS, loftvog og hallamæli. Kerfinu er stýrt með tveimur þráðlausum stýritökkum – vinstri takki stillir aðstoðarstig en hægri takki stýrir skjánum.

Hið fjarlægjanlega 800 Wh batterí (4 kg) styður GaN Fast Charging hraðhleðslutækni. Með 12A hleðslutækinu hlaðast 0–75% á aðeins 1,5 klukkustundu (full hleðsla tekur um 2 klst. og 25 mín.). Skjárinn býður einnig upp á öfluga 65W USB-C hraðhleðslu fyrir önnur tæki.

Top-Tier FOX Factory fjöðrun, AXS gírar og SRAM Maven

  • FOX Factory Fjöðrun: FOX Float 36 Factory Grip X2 (160 mm slaglengd) gaffall með 4-vega stillingum ásamt FOX Float X EVOL LV afturdempara sem býður upp á 2-position (Open/Firm) lever.

  • Þráðlaus gírskipting: SRAM GX Eagle AXS T-Type (1×12) þráðlaus rafræn skipting sem festist beint á öxulinn (Hangerless). Skiptir um gíra með fullkominni nákvæmni undir fullu álagi.

  • Bremsur & dekk: SRAM Maven Bronze B1 4-stimpla vökvabremsur með 200 mm diskum skila gríðarlegum stöðvunarkrafti. Maxxis Assegai 3C MaxxTerra (29×2.50″) að framan og Maxxis Minion DHR II 3C MaxxTerra (29×2.50″) að aftan veita yfirburða grip á grjóti, möl og drullu.

Tæknilegar upplýsingar

Íhlutur Lýsing
Mótor Avinox M2S 2026, 1500W, 130 Nm (150 Nm í Boost)
Rafhlaða Avinox 36V / 800 Wh (Fjarlægjanleg, 4 kg)
Hleðslutæki 12 A GaN Fast Charger (fylgir með sem staðalbúnaður)
Drægni Allt að 157 km
Skjár Avinox DP100, 2″ OLED snertiskjár + USB-C (65W)
Stýring Avinox þráðlausir stýritakkar (vinstri og hægri)
Rammi Koltrefjarammi (Carbon)
Gaffall FOX Float 36 Factory Grip X2 29″, 160 mm travel, 44 mm offset
Afturdempari FOX Float X 2pos Evol LV, 210×55 mm
Gírskiptir SRAM GX Eagle AXS T-Type, 12 speed (Þráðlaus)
Bremsur SRAM Maven Bronze B1, vökva, 4-stimpla, 200 mm diskar
Dekk Maxxis Assegai 3C 29×2.50 (F) / Maxxis Minion DHR II 3C 29×2.50 (R)
Sætisstöng X-Fusion Manic NR, Ø 30.9 mm (helteleskópísk: S–125mm, M–150mm, L–170mm, XL–190mm)
Stýri & Stýrisstúkur RaceFace Chester AL 35 mm / RaceFace Chester AL 40 mm / RaceFace Getta grips
Hnakkur Fizik Terra Ridon X5 – 145 mm
Burðargeta 120 kg

Ráðlagðar stærðir rafmagnshjóla

Hæð knapa Stærð ramma (tommur) Stærð (merking)
180 – 200 cm 21″, 21.5″, 22″ XL
170 – 190 cm 19″, 19.5″, 20″ L
160 – 180 cm 17″, 17.5″, 18″ M
150 – 170 cm 15″, 16″ S
135 – 155 cm 14″ XS
Skyldar vörur
Scroll to Top

Tilbúin(n) í næsta ævintýri? 🏔️

Við hjá RÖTT lifum fyrir drullu og hraða. Skráðu þig á listann fyrir sérstök boð á viðburði, nýjustu vörurnar frá okkar helstu merkjum og sértilboð sem fara aldrei á samfélagsmiðla.

1