3
19.480 kr.

Crussis e-Full 12.11-PRO X AVINOX REM (800 Wh) – 2027 árgerð

Crussis e-Full 12.11-PRO X REM er sérhannað keppnishjól þar sem öllum mörkum er ýtt til hliðar. Hjólið er afrakstur þróunarvinnu í Tékklandi í samstarfi við þrefaldan heimsmeistara, Michal Prokop. Koltrefjaramminn var hannaður að síðustu skrúfu með áherslu á hámarksafköst, frábæra vinnslu og keppnisgeómetríu sem uppfyllir kröfur krefjandist keppenda í enduro-keppnum og óbyggðum.

Helstu eiginleikar í hnotskurn

  • Drægni: Allt að 157 km

  • Rafhlaða: Avinox 800 Wh (Fjarlægjanleg, hraðhleðsla með 12A hleðslutæki)

  • Mótor: Avinox M2S 2026 (130 Nm / allt að 150 Nm í Boost, 1500W hámarksafl)

  • Gírar: 1 x 12 (SRAM XX Eagle AXS T-Type – Þráðlaus skipting)

  • Dempun: FOX Podium Factory Grip X2 Kashima (160 mm) / FOX Float X Live Valve Neo Factory

  • Gjarðir: FSA Gradient i30 Carbon 29″ (Koltrefjahjólstell)

  • Tækni: Avinox DP100 2″ OLED snertiskjár, þráðlaus FOX Transfer Neo sætisstöng og rafræn fjöðrun

Keppnishönnun Michal Prokop & Koltrefjahjólstell

Hjólið skartar léttum keppnisramma úr koltrefjum (Carbon) ásamt öflugum FSA Gradient i30 Carbon koltrefjagjörðum. Þessi samsetning skilar lágmarks snúningsþyngd, yfirburða stífleika og nákvæmni á tæknilegum enduro-brautum. Hönnunin tryggir lágan þungamiðju, frábæra stýringu og þá þægilegu praktík að geta tekið rafhlöðuna úr til hleðslu eða geymslu.

⚡ FORSALA HAFIN – CRUSSIS AVINOX 2027

Tryggðu þér eitt af eftirsóttustu rafmagnsreiðhjólum ársins!

Vegna mikillar eftirspurnar og takmarkaðs upplags bjóðum við upp á forpantanir á CRUSSIS 2027 árgerðinni. Hjólin afhendast í nokkrum sendingar tímabilum frá lokum árs 2026 og fram á mitt ár 2027. 1)Afhending byrjun Nóv-Lok des 2026 2)afhending byrjun febrúar-lok mars 2027 3)afhending byrjun apríl-Lok apríl 2027 4)afhending byrjun Maí-Júní 2027.

Ath takmarkað magn af týpum er í hverju sendingartímabili svo það borgar sig að hafa hraðar hendur til að tryggja sér rétta gerð og stærð á þeim tíma sem maður vill fá afhent.

📩 Hvernig forpantar þú?

Til að kanna stöðu á lager, afhendingartíma ákveðins hjóls og tryggja þér hjól í þinni stærð er einfaldast að hafa samband við okkur:

  • 📧 Senda póst: Skrifaðu okkur á info@rott.is (Með gerð hjóls og stærð)

  • 📞 Hringja í okkur: Hafðu samband í síma 537-1333

Öllum fyrirspurnum er svarað innan klukkustundar á opnunartíma verslunar (virka daga kl. 09:00–17:00).

🤝 Pöntunarferli og verðstefna

  • Okkar verðstefna: Við hjá Rött leggjum áherslu á að bjóða CRUSSIS á sanngjörnu og lágu raunverulegu verði allan ársins hring. Með því tryggjum við öllum viðskiptavinum okkar bestu mögulegu kjörin – hvort sem er við forpöntun eða kaup í verslun.

  • Greiðsla: Þegar laust eintak hefur verið staðfest í réttri stærð og sendingu, er pöntunin virkjuð með 20% staðfestingargjaldi. Eftirstöðvar eru síðan greiddar við afhendingu hjólsins.

📋 Skilmálar forpantana

  • Staðfestingargjald: Staðfestingargjaldið (20%) er óafturkræf greiðsla sem staðfestir og tryggir forpöntun á viðkomandi hjóli.

  • Verðfyrirvari: Öll verð eru birt með fyrirvara um innsláttar- og prentvillur. Verð geta breyst án fyrirvara vegna verulegra breytinga á gengi gjaldmiðla, VSK-breytinga, Verðbreytingum framleiðanda eða ófyrirséðra hækkana á flutningskostnaði.

  • Afhendingartími: Áætlaðir afhendingarmánuðir miðast við framleiðsluáætlun CRUSSIS og flutningsaðila. Seinkanir í framleiðslu eða flutningum sem eru óviðráðanlegar af okkar hálfu geta hliðrað afhendingartíma.

Viltu skoða aðrar útfærslur? Þú getur flett á milli gerða hér á vörusíðunni eða heyrt í sölumönnum okkar fyrir nánari ráðgjöf.

Fyrir ítarlegar tækni upplýsingar og til að skoða stærðartöflu farið neðar í síðuna og ýtið á „LÝSING“

1.895.000 kr.

- +

Öruggar greiðsluleiðir

Lýsing

Ótrúlegur kraftur: Avinox M2S drifkerfið

Mótorinn vegur aðeins 2,6 kg en skilar allt að 1500 W hámarksafli og 130 Nm togi, sem fer upp í heil 150 Nm í Boost mode. Snjallir skynjarar mótorsins aðlaga aðstoðina sjálfkrafa að þínum hjólastíl og landslagi.

Avinox DP100 snertiskjár og 12A hraðhleðsla

Stjórnstöð hjólsins er samþættur 2″ OLED snertiskjár í rammann með hárri birtu (800 nits) og innbyggðu GPS, loftvog og hallamæli. Kerfinu er stýrt með tveimur þráðlausum stýritökkum.

Hið fjarlægjanlega 800 Wh batterí (4 kg) styður GaN Fast Charging hraðhleðslutækni. Með 12A (508W) hleðslutækinu hlaðast 0–75% á aðeins 1,5 klukkustundu (full hleðsla tekur um 2 klst. og 25 mín.). Skjárinn býður einnig upp á öfluga 65W USB-C hraðhleðslu fyrir önnur tæki.

Rafræn FOX Live Valve fjöðrun, SRAM XX AXS og Maven Ultimate

  • Rafræn FOX Factory Fjöðrun: Hin nýja FOX Podium Grip X2 Kashima (160 mm slaglengd) „upside-down“ enduro-gaffall með 20 mm öxli, ásamt FOX Float X Live Valve Neo afturdempara sem aðlagar þjöppunina rafrænt allt að 70 sinnum á sekúndu miðað við undirlagið.

  • SRAM XX Eagle AXS T-Type drifrás: Þráðlaus rafræn gírskipting í hæsta gæðaflokki með SRAM X0 ISIS sveifum sem festist beint á öxulinn (Hangerless).

  • Þráðlaus sætisstöng & Maven Ultimate bremsur: FOX Transfer Neo þráðlaus loftstýrð sætisstöng með 26 ms viðbragðstíma. SRAM Maven Ultimate B1 4-stimpla vökvabremsur með títanskrúfum, tool-free stillingum og 200 mm diskum tryggja fullkominn stöðvunarkraft.

  • Dekk: Maxxis Assegai 3C MaxxTerra (29×2.50″) að framan og Maxxis Minion DHR II 3C MaxxTerra (29×2.50″) að aftan veita yfirburða grip á grjóti, möl og drullu.

Tæknilegar upplýsingar

Íhlutur Lýsing
Mótor Avinox M2S 2026, 1500W, 130 Nm (150 Nm í Boost)
Rafhlaða Avinox 36V / 800 Wh (Fjarlægjanleg, 4 kg)
Hleðslutæki 12 A GaN Fast Charger (508W, fylgir með sem staðalbúnaður)
Drægni Allt að 157 km
Skjár Avinox DP100, 2″ OLED snertiskjár + USB-C (65W)
Stýring Avinox þráðlausir stýritakkar (vinstri og hægri)
Rammi Koltrefjarammi (Carbon) – Michal Prokop Keppnishönnun
Gjarðir / Hjól FSA Gradient i30 Carbon 29″ – 20×110 mm (F) / 12×148 mm XD (R)
Gaffall FOX Podium, Grip X2, Factory Kashima 29″, 160 mm travel, 20 mm öxull
Afturdempari FOX Float X Live Valve Neo, F-S, Kashima, 210×55 mm (Rafrænn)
Gírskiptir SRAM XX Eagle AXS T-Type, 12 speed (Þráðlaus)
Gírstýring SRAM AXS Pod Rocker Controller (Hægri), MMX
Sveifar SRAM X0 ISIS, 160 mm
Bremsur SRAM Maven Ultimate B1, vökva, 4-stimpla, títanskrúfur, 200 mm diskar
Dekk Maxxis Assegai 3C 29×2.50 (F) / Maxxis Minion DHR II 3C 29×2.50 (R)
Sætisstöng FOX Transfer Neo Factory Kashima, þráðlaus (slaglengd: S–125mm, M–150mm, L–175mm, XL–200mm)
Stýri & Stýrisstúkur RaceFace Turbine AL 35 mm (780 mm breidd, 40 mm rise) / RaceFace Getta grips
Hnakkur Fizik Terra Ridon X5 – 145 mm
Burðargeta 120 kg

Ráðlagðar stærðir rafmagnshjóla

Hæð knapa Stærð ramma (tommur) Stærð (merking)
180 – 200 cm 21″, 21.5″, 22″ XL
170 – 190 cm 19″, 19.5″, 20″ L
160 – 180 cm 17″, 17.5″, 18″ M
150 – 170 cm 15″, 16″ S
135 – 155 cm 14″ XS
Skyldar vörur
Scroll to Top

Tilbúin(n) í næsta ævintýri? 🏔️

Við hjá RÖTT lifum fyrir drullu og hraða. Skráðu þig á listann fyrir sérstök boð á viðburði, nýjustu vörurnar frá okkar helstu merkjum og sértilboð sem fara aldrei á samfélagsmiðla.

3