4
43.058 kr.

Crussis E-Full 9.12 Avinox M2S 800wh – 2027

Crussis e-Full AX 9.12-M2S (800 Wh) – 2027 árgerð

Crussis e-Full AX 9.12-M2S er fulldempað rafmagnshjól úr 2027 línunni, sérstaklega hannað fyrir sportlega aksturseiginleika, tæknilega kafla og langar ferðir í óbyggðum. Hjólið sameinar hið gríðarlega öfluga Avinox M2S mótorkerfi, trausta RockShox fjöðrun og áreiðanlega íhluti sem skila réttu jafnvægi milli afls og stjórnunar.

Helstu eiginleikar í hnotskurn

  • Drægni: Allt að 157 km

  • Rafhlaða: Avinox 800 Wh (Hraðhleðsla með öflugu 12A hleðslutæki sem fylgir)

  • Mótor: Avinox M2S 2026 (130 Nm / allt að 150 Nm í Boost)

  • Gírar: 1 x 12 (SRAM 70 T-Type Eagle)

  • Dempun: RockShox Recon Silver RL (150 mm) / Deluxe Select R

Nýr staðall í álrömmum (MY27)

2027 línan frá Crussis setur nýja staðla fyrir smíði á álrömmum. Með nákvæmlega slípuðum suðum, hreinum línum og útliti sem hermir eftir koltrefjaramma færðu hágæða hönnun ásamt miklum styrk og endingu.

⚡ FORSALA HAFIN – CRUSSIS AVINOX 2027

Tryggðu þér eitt af eftirsóttustu rafmagnsreiðhjólum ársins!

Vegna mikillar eftirspurnar og takmarkaðs upplags bjóðum við upp á forpantanir á CRUSSIS 2027 árgerðinni. Hjólin afhendast í nokkrum sendingar tímabilum frá lokum árs 2026 og fram á mitt ár 2027. 1)Afhending byrjun Nóv-Lok des 2026 2)afhending byrjun febrúar-lok mars 2027 3)afhending byrjun apríl-Lok apríl 2027 4)afhending byrjun Maí-Júní 2027.

Ath takmarkað magn af týpum er í hverju sendingartímabili svo það borgar sig að hafa hraðar hendur til að tryggja sér rétta gerð og stærð á þeim tíma sem maður vill fá afhent.

📩 Hvernig forpantar þú?

Til að kanna stöðu á lager, afhendingartíma ákveðins hjóls og tryggja þér hjól í þinni stærð er einfaldast að hafa samband við okkur:

  • 📧 Senda póst: Skrifaðu okkur á info@rott.is (Með gerð hjóls og stærð)

  • 📞 Hringja í okkur: Hafðu samband í síma 537-1333

Öllum fyrirspurnum er svarað innan klukkustundar á opnunartíma verslunar (virka daga kl. 09:00–17:00).

🤝 Pöntunarferli og verðstefna

  • Okkar verðstefna: Við hjá Rött leggjum áherslu á að bjóða CRUSSIS á sanngjörnu og lágu raunverulegu verði allan ársins hring. Með því tryggjum við öllum viðskiptavinum okkar bestu mögulegu kjörin – hvort sem er við forpöntun eða kaup í verslun.

  • Greiðsla: Þegar laust eintak hefur verið staðfest í réttri stærð og sendingu, er pöntunin virkjuð með 20% staðfestingargjaldi. Eftirstöðvar eru síðan greiddar við afhendingu hjólsins.

📋 Skilmálar forpantana

  • Staðfestingargjald: Staðfestingargjaldið (20%) er óafturkræf greiðsla sem staðfestir og tryggir forpöntun á viðkomandi hjóli.

  • Verðfyrirvari: Öll verð eru birt með fyrirvara um innsláttar- og prentvillur. Verð geta breyst án fyrirvara vegna verulegra breytinga á gengi gjaldmiðla, VSK-breytinga, Verðbreytingum framleiðanda eða ófyrirséðra hækkana á flutningskostnaði.

  • Afhendingartími: Áætlaðir afhendingarmánuðir miðast við framleiðsluáætlun CRUSSIS og flutningsaðila. Seinkanir í framleiðslu eða flutningum sem eru óviðráðanlegar af okkar hálfu geta hliðrað afhendingartíma.

Viltu skoða aðrar útfærslur? Þú getur flett á milli gerða hér á vörusíðunni eða heyrt í sölumönnum okkar fyrir nánari ráðgjöf.

Fyrir ítarlegar tækni upplýsingar og til að skoða stærðartöflu farið neðar í síðuna og ýtið á „LÝSING“

680.000 kr.

- +

Öruggar greiðsluleiðir

Lýsing

Nánari lýsing

Ótrúlegur kraftur: Avinox M2S drifkerfið

Mótorinn vegur aðeins 2,6 kg en skilar allt að 1500 W hámarksafli og 130 Nm togi, sem fer upp í heil 150 Nm í Boost mode. Snjallir skynjarar mótorsins aðlaga aðstoðina sjálfkrafa að þínum hjólastíl og landslagi.

Avinox DP100 snertiskjár og hraðhleðsla

Stjórnstöð hjólsins er samþættur 2″ OLED snertiskjár í rammann með hárri birtu (800 nits) og innbyggðu GPS, loftvog og hallamæli. Kerfinu er stýrt með tveimur þráðlausum stýrihnökkum.

Losanlega 800 Wh rafhlaðan styður hratt hleðslukerfi (GaN Fast Charging) – með 12A hleðslutækinu hlaðast 0–75% á aðeins 1,5 klukkustundu (full hleðsla tekur um 2 klst. og 25 mín.).Ath Crussis 9.12 kemur einungis með removable batterýi.

Traust RockShox fjöðrun og SRAM T-Type

  • Fjöðrun: RockShox Recon Silver RL Solo Air (150 mm) loftgaffall ásamt RockShox Deluxe Select R afturdempara gleypa ójöfnur og tryggja veggrip í niðurleiðum.

  • Gírskipting: SRAM 70 T-Type Eagle (1×12) býður upp á gríðarlega sterka og nákvæma gírskiptingu með nýju T-Type hönnuninni sem festist beint á afturöxulinn án gírdreypu (Hangerless).

  • Bremsur & dekk: SRAM DB4 4-stimpla vökvabremsur með 200 mm diskum og Schwalbe Nobby Nic 29 × 2.60″ dekk tryggja stjórn og stöðvunarkraft.

Tæknilegar upplýsingar

Íhlutur Lýsing
Mótor Avinox M2S 2026, 1500W, 130 Nm (150 Nm í Boost)
Rafhlaða Avinox 36V / 800 Wh (aftakanleg)
Hleðslutæki 12 A GaN Fast Charger (fylgir með)
Skjár Avinox DP100, 2″ OLED snertiskjár + USB-C (65W)
Gaffall RockShox FS Recon Silver RL Solo Air 29″, 150 mm
Afturdempari RockShox Deluxe Select R, 210×55 mm
Gírskiptir SRAM 70 T-Type Eagle, 12 speed
Bremsur SRAM DB4, vökva, 4-stimpla, 200 mm diskar
Dekk Schwalbe Nobby Nic 29×2.60
Sætisstöng X-Fusion Manic LC (helteleskópísk)
Burðargeta 120 kg

Ráðlagðar stærðir rafmagnshjóla

Hæð knapa Stærð ramma (tommur) Stærð (merking)
180 – 200 cm 21″, 21.5″, 22″ XL
170 – 190 cm 19″, 19.5″, 20″ L
160 – 180 cm 17″, 17.5″, 18″ M
150 – 170 cm 15″, 16″ S
135 – 155 cm 14″ XS

 

Skyldar vörur
Scroll to Top

Tilbúin(n) í næsta ævintýri? 🏔️

Við hjá RÖTT lifum fyrir drullu og hraða. Skráðu þig á listann fyrir sérstök boð á viðburði, nýjustu vörurnar frá okkar helstu merkjum og sértilboð sem fara aldrei á samfélagsmiðla.

4