Crussis e-Full AVINOX 10.12-M2S (800 Wh) – 2027 árgerð

Crussis e-Full AX 10.12-M2S (800 Wh) – 2027 árgerð

Crussis e-Full AX 10.12-M2S er hraðvirkt og öflugt fulldempað rafmagnshjól úr 2027 línunni, tilbúið í tæknilegar niðurleiðir, brattar brekkur og krefjandi slóða. Þetta hjól býður upp á uppfærða fjöðrun, öflugri bremsur og Maxxis gæðadekk sem skila enn meiri stöðugleika og öryggi í meira krefjandi landslagi.

Helstu eiginleikar í hnotskurn

  • Drægni: Allt að 157 km

  • Rafhlaða: Avinox 800 Wh (Hraðhleðsla með 12A hleðslutæki)

  • Mótor: Avinox M2S 2026 (130 Nm / allt að 150 Nm í Boost)

  • Gírar: 1 x 12 (SRAM 70 T-Type Eagle)

  • Dempun: RockShox Psylo Silver RC (150 mm) / Deluxe Select+ RT

  • Tækni: Avinox DP100 2″ OLED snertiskjár með tveimur þráðlausum stýritökkum

Nýr staðall í álrömmum (MY27)

2027 línan frá Crussis setur nýja staðla fyrir smíði á álrömmum. Með nákvæmlega slípuðum suðum, hreinum línum og útliti sem hermir eftir koltrefjaramma færðu hágæða hönnun ásamt miklum styrk og endingu.

27-novy-standard2

⚡ FORSALA HAFIN – CRUSSIS AVINOX 2027

Tryggðu þér eitt af eftirsóttustu rafmagnsreiðhjólum ársins!

Vegna mikillar eftirspurnar og takmarkaðs upplags bjóðum við upp á forpantanir á CRUSSIS 2027 árgerðinni. Hjólin afhendast í nokkrum sendingar tímabilum frá lokum árs 2026 og fram á mitt ár 2027. 1)Afhending byrjun Nóv-Lok des 2026 2)afhending byrjun febrúar-lok mars 2027 3)afhending byrjun apríl-Lok apríl 2027 4)afhending byrjun Maí-Júní 2027.

Ath takmarkað magn af týpum er í hverju sendingartímabili svo það borgar sig að hafa hraðar hendur til að tryggja sér rétta gerð og stærð á þeim tíma sem maður vill fá afhent.

📩 Hvernig forpantar þú?

Til að kanna stöðu á lager, afhendingartíma ákveðins hjóls og tryggja þér hjól í þinni stærð er einfaldast að hafa samband við okkur:

  • 📧 Senda póst: Skrifaðu okkur á info@rott.is (Með gerð hjóls og stærð)

  • 📞 Hringja í okkur: Hafðu samband í síma 537-1333

Öllum fyrirspurnum er svarað innan klukkustundar á opnunartíma verslunar (virka daga kl. 09:00–17:00).

🤝 Pöntunarferli og verðstefna

  • Okkar verðstefna: Við hjá Rött leggjum áherslu á að bjóða CRUSSIS á sanngjörnu og lágu raunverulegu verði allan ársins hring. Með því tryggjum við öllum viðskiptavinum okkar bestu mögulegu kjörin – hvort sem er við forpöntun eða kaup í verslun.

  • Greiðsla: Þegar laust eintak hefur verið staðfest í réttri stærð og sendingu, er pöntunin virkjuð með 20% staðfestingargjaldi. Eftirstöðvar eru síðan greiddar við afhendingu hjólsins.

📋 Skilmálar forpantana

  • Staðfestingargjald: Staðfestingargjaldið (20%) er óafturkræf greiðsla sem staðfestir og tryggir forpöntun á viðkomandi hjóli.

  • Verðfyrirvari: Öll verð eru birt með fyrirvara um innsláttar- og prentvillur. Verð geta breyst án fyrirvara vegna verulegra breytinga á gengi gjaldmiðla, VSK-breytinga, Verðbreytingum framleiðanda eða ófyrirséðra hækkana á flutningskostnaði.

  • Afhendingartími: Áætlaðir afhendingarmánuðir miðast við framleiðsluáætlun CRUSSIS og flutningsaðila. Seinkanir í framleiðslu eða flutningum sem eru óviðráðanlegar af okkar hálfu geta hliðrað afhendingartíma.

Viltu skoða aðrar útfærslur? Þú getur flett á milli gerða hér á vörusíðunni eða heyrt í sölumönnum okkar fyrir nánari ráðgjöf.

Fyrir ítarlegar tækni upplýsingar og til að skoða stærðartöflu farið neðar í síðuna og ýtið á „LÝSING“

750.000 kr.

- +

Öruggar greiðsluleiðir

Lýsing

Nánari lýsing

Ótrúlegur kraftur: Avinox M2S drifkerfið

Mótorinn vegur aðeins 2,6 kg en skilar allt að 1500 W hámarksafli og 130 Nm togi, sem fer upp í heil 150 Nm í Boost mode. Snjallir skynjarar mótorsins aðlaga aðstoðina sjálfkrafa að þínum hjólastíl og landslagi.

Avinox DP100 snertiskjár og hraðhleðsla

Stjórnstöð hjólsins er samþættur 2″ OLED snertiskjár í rammann með hárri birtu (800 nits) og innbyggðu GPS, loftvog og hallamæli. Kerfinu er stýrt með tveimur þráðlausum stýritökkum – vinstri hnappur stillir aðstoðarstig en hægri hnappur stýrir skjánum.

Aftakanlega 800 Wh rafhlaðan styður hratt hleðslukerfi (GaN Fast Charging) – með 12A hleðslutækinu hlaðast 0–75% á aðeins 1,5 klukkustundu (full hleðsla tekur um 2 klst. og 25 mín.). Skjárinn býður einnig upp á öfluga 65W USB-C hraðhleðslu fyrir önnur tæki.

Uppfærð RockShox fjöðrun, SRAM DB6 og Maxxis dekk

  • Fjöðrun: RockShox Psylo Silver RC (150 mm slaglengd) loftgaffall með nýjum 35 mm fótleggjum fyrir meiri stífni ásamt RockShox Deluxe Select+ RT afturdempara sem býður upp á Open/Threshold lever til að stífa demparann í brekkum.

  • Gírskipting: SRAM 70 T-Type Eagle (1×12) býður upp á gríðarlega sterka og nákvæma gírskiptingu með nýju T-Type hönnuninni sem festist beint á afturöxulinn án gírdreypu (Hangerless).

  • Bremsur & dekk: SRAM DB6 4-stimpla vökvabremsur með 200 mm diskum tryggja frábæran stöðvunarkraft. Maxxis Assegai (29×2.50″) að framan og Maxxis Minion DHR II (29×2.40″) að aftan veita yfirburða veggrip í krappri stýringu og spyrnu.

Tæknilegar upplýsingar

Íhlutur Lýsing
Mótor Avinox M2S 2026, 1500W, 130 Nm (150 Nm í Boost)
Rafhlaða Avinox 36V / 800 Wh (aftakanleg)
Hleðslutæki 12 A GaN Fast Charger (fylgir með)
Skjár Avinox DP100, 2″ OLED snertiskjár + USB-C (65W)
Stýring Avinox þráðlausir stýrihnappar (vinstri og hægri)
Gaffall RockShox FS Psylo Silver RC Solo Air 29″, 150 mm (35 mm chassis)
Afturdempari RockShox Deluxe Select+ RT, 210×55 mm (Open/Threshold)
Gírskiptir SRAM 70 T-Type Eagle, 12 speed
Bremsur SRAM DB6, vökva, 4-stimpla, 200 mm diskar
Dekk Maxxis Assegai 29×2.50 (F) / Maxxis Minion DHR II 29×2.40 (R)
Sætisstöng X-Fusion Manic LC NR (helteleskópísk)
Burðargeta 120 kg

Ráðlagðar stærðir rafmagnshjóla

Hæð knapa Stærð ramma (tommur) Stærð (merking)
180 – 200 cm 21″, 21.5″, 22″ XL
170 – 190 cm 19″, 19.5″, 20″ L
160 – 180 cm 17″, 17.5″, 18″ M
150 – 170 cm 15″, 16″ S
135 – 155 cm 14″ XS
Skyldar vörur
Scroll to Top

Tilbúin(n) í næsta ævintýri? 🏔️

Við hjá RÖTT lifum fyrir drullu og hraða. Skráðu þig á listann fyrir sérstök boð á viðburði, nýjustu vörurnar frá okkar helstu merkjum og sértilboð sem fara aldrei á samfélagsmiðla.

0