Crussis e-Full AX CARBON 10.12-M2S (800 Wh) – 2027 árgerð
Crussis e-Full AX CARB 10.12-M2S er hraðvirkt og létt fulldempað rafmagnshjól úr 2027 línunni með koltrefjaramma (carbon). Hjólið sameinar lága þyngd, lipra meðhöndlun og búnað sem er sérstaklega miðaður við sportlegan akstur í krefjandi landslagi. Það hentar fullkomlega fyrir hjólara sem vilja tækla brattar brekkur, hraða slóða og tæknilega kafla með nægum afköstum og yfirvegun.
Helstu eiginleikar í hnotskurn
-
Drægni: Allt að 157 km
-
Rafhlaða: Avinox 800 Wh (Samþætt í ramma, hraðhleðsla með 12A hleðslutæki)
-
Mótor: Avinox M2S 2026 (130 Nm / allt að 150 Nm í Boost, 1300W hámarksafl)
-
Gírar: 1 x 12 (SRAM 70 T-Type Eagle)
-
Dempun: RockShox Psylo Silver RC (150 mm) / Deluxe Select+ RT
-
Tækni: Avinox DP100 2″ OLED snertiskjár með tveimur þráðlausum stýritökkum
Koltrefjarammi í sérflokki
Hjólið skartar léttum og gríðarlega sterkum koltrefjaramma (Carbon) sem gefur því hámarks stífni og tæknilega yfirburði í óbyggðum. Hönnunin tryggir lágan þungamiðju og lipra meðhöndlun í krappri stýringu.
⚡ FORSALA HAFIN – CRUSSIS AVINOX 2027
Tryggðu þér eitt af eftirsóttustu rafmagnsreiðhjólum ársins!
Vegna mikillar eftirspurnar og takmarkaðs upplags bjóðum við upp á forpantanir á CRUSSIS 2027 árgerðinni. Hjólin afhendast í nokkrum sendingar tímabilum frá lokum árs 2026 og fram á mitt ár 2027. 1)Afhending byrjun Nóv-Lok des 2026 2)afhending byrjun febrúar-lok mars 2027 3)afhending byrjun apríl-Lok apríl 2027 4)afhending byrjun Maí-Júní 2027.
Ath takmarkað magn af týpum er í hverju sendingartímabili svo það borgar sig að hafa hraðar hendur til að tryggja sér rétta gerð og stærð á þeim tíma sem maður vill fá afhent.
📩 Hvernig forpantar þú?
Til að kanna stöðu á lager, afhendingartíma ákveðins hjóls og tryggja þér hjól í þinni stærð er einfaldast að hafa samband við okkur:
-
📧 Senda póst: Skrifaðu okkur á info@rott.is (Með gerð hjóls og stærð)
-
📞 Hringja í okkur: Hafðu samband í síma 537-1333
Öllum fyrirspurnum er svarað innan klukkustundar á opnunartíma verslunar (virka daga kl. 09:00–17:00).
🤝 Pöntunarferli og verðstefna
-
Okkar verðstefna: Við hjá Rött leggjum áherslu á að bjóða CRUSSIS á sanngjörnu og lágu raunverulegu verði allan ársins hring. Með því tryggjum við öllum viðskiptavinum okkar bestu mögulegu kjörin – hvort sem er við forpöntun eða kaup í verslun.
-
Greiðsla: Þegar laust eintak hefur verið staðfest í réttri stærð og sendingu, er pöntunin virkjuð með 20% staðfestingargjaldi. Eftirstöðvar eru síðan greiddar við afhendingu hjólsins.
📋 Skilmálar forpantana
-
Staðfestingargjald: Staðfestingargjaldið (20%) er óafturkræf greiðsla sem staðfestir og tryggir forpöntun á viðkomandi hjóli.
-
Verðfyrirvari: Öll verð eru birt með fyrirvara um innsláttar- og prentvillur. Verð geta breyst án fyrirvara vegna verulegra breytinga á gengi gjaldmiðla, VSK-breytinga, Verðbreytingum framleiðanda eða ófyrirséðra hækkana á flutningskostnaði.
-
Afhendingartími: Áætlaðir afhendingarmánuðir miðast við framleiðsluáætlun CRUSSIS og flutningsaðila. Seinkanir í framleiðslu eða flutningum sem eru óviðráðanlegar af okkar hálfu geta hliðrað afhendingartíma.
Viltu skoða aðrar útfærslur? Þú getur flett á milli gerða hér á vörusíðunni eða heyrt í sölumönnum okkar fyrir nánari ráðgjöf.
Fyrir ítarlegar tækni upplýsingar og til að skoða stærðartöflu farið neðar í síðuna og ýtið á „LÝSING“
835.000 kr.
Öruggar greiðsluleiðir
Ótrúlegur kraftur: Avinox M2S drifkerfið
Mótorinn vegur aðeins 2,6 kg en skilar allt að 1300 W hámarksafli og 130 Nm togi, sem fer upp í heil 150 Nm í Boost mode. Snjallir skynjarar mótorsins aðlaga aðstoðina sjálfkrafa að þínum hjólastíl og landslagi.
Avinox DP100 snertiskjár og 12A hraðhleðsla
Stjórnstöð hjólsins er samþættur 2″ OLED snertiskjár í rammann með hárri birtu (800 nits) og innbyggðu GPS, loftvog og hallamæli. Kerfinu er stýrt með tveimur þráðlausum stýritökkum – vinstri takki stillir aðstoðarstig en hægri takki stýrir skjánum.
Samþætta 800 Wh rafhlaðan (3,74 kg) styður GaN Fast Charging hraðhleðslutækni. Með 12A (508W) hleðslutækinu hlaðast 0–75% á aðeins 1,5 klukkustundu (full hleðsla tekur um 2 klst. og 25 mín.). Skjárinn býður einnig upp á öfluga 65W USB-C hraðhleðslu fyrir önnur tæki.
Uppfærð RockShox fjöðrun, SRAM DB6 og Maxxis Tanwall dekk
-
Fjöðrun: RockShox Psylo Silver RC (150 mm slaglengd) loftgaffall með nýjum 35 mm fótleggjum fyrir meiri stífni ásamt RockShox Deluxe Select+ RT afturdempara sem býður upp á Open/Threshold lever til að stífa demparann í brekkum.
-
Gírskipting: SRAM 70 T-Type Eagle (1×12) býður upp á gríðarlega sterka og nákvæma gírskiptingu með nýju T-Type hönnuninni sem festist beint á afturöxulinn án gírdreypu (Hangerless).
-
Bremsur & dekk: SRAM DB6 4-stimpla vökvabremsur með 200 mm diskum tryggja frábæran stöðvunarkraft. Maxxis Assegai Tanwall (29×2.50″) að framan og Maxxis Minion DHR II Tanwall (29×2.40″) að aftan veita yfirburða veggrip og stílhreint útlit.
Tæknilegar upplýsingar
| Íhlutur | Lýsing |
| Mótor | Avinox M2S 2026, 1300W, 130 Nm (150 Nm í Boost) |
| Rafhlaða | Avinox 36V / 800 Wh (Samþætt í ramma, 3,74 kg) |
| Hleðslutæki | 12 A GaN Fast Charger (508W, fylgir með sem staðalbúnaður) |
| Drægni | Allt að 157 km |
| Skjár | Avinox DP100, 2″ OLED snertiskjár + USB-C (65W) |
| Stýring | Avinox þráðlausir stýritakkar (vinstri og hægri) |
| Rammi | Koltrefjarammi (Carbon) |
| Gaffall | RockShox FS Psylo Silver RC Solo Air 29″, 150 mm travel (35 mm chassis) |
| Afturdempari | RockShox Deluxe Select+ RT, 210×55 mm (Open/Threshold) |
| Gírskiptir | SRAM 70 T-Type Eagle, 12 speed |
| Bremsur | SRAM DB6, vökva, 4-stimpla, 200 mm diskar |
| Dekk | Maxxis Assegai Tanwall 29×2.50 (F) / Maxxis Minion DHR II Tanwall 29×2.40 (R) |
| Sætisstöng | X-Fusion Manic LC NR, Ø 30.9 mm (helteleskópísk: S–125mm, M–150mm, L–170mm, XL–190mm) |
| Handföng (Grips) | RACEFACE Getta, 30 eða 33 mm, svört |
| Hnakkur | SELLE ROYAL |
| Burðargeta | 120 kg |
Ráðlagðar stærðir rafmagnshjóla
| Hæð knapa | Stærð ramma (tommur) | Stærð (merking) |
| 180 – 200 cm | 21″, 21.5″, 22″ | XL |
| 170 – 190 cm | 19″, 19.5″, 20″ | L |
| 160 – 180 cm | 17″, 17.5″, 18″ | M |
| 150 – 170 cm | 15″, 16″ | S |
| 135 – 155 cm | 14″ | XS |